| Skvísur í Quito |
| Mamma og pabbi hérna úti - já ég er stærst í fjölskyldunni minni. |
Næsta morgun vöknuðum við öll um 7 leytið, aðalega af því hann Gunnar dró frá gluggatjöldin og gat ekki sleppt því að segja hátt VÁ, og litum við öll útum gluggann, shiii annað eins útsýni hef ég ekki séð! En við fórum svo niður í morgunmat um hálfníu og það sem beið okkur var ristabrauð og sulta, what a breakfest eftir allt ferðalagið en okei allt í góðu, borðuðum og fórum svo að huga að brottför þegar Sebastian birtist og sagði að engin af okkur væri að fara strax svo við gætum slakað á, og minnti okkur á hádegismat klukkan 2. Við nenntum engan vegin að fara aftur að sofa svo við höfðum okkur til og fórum í göngutúr um Quito, kíktum í búðir, borðuðum versta bakarísmat í heimi og allskonar túristalega hluti. Quito er voða voða falleg, eins og sést á myndunum! Svo tók við chill og matur þangað til Ólöf var fyrst sótt, svo Una og Gunnar og ég beið ein á hótelinu... En svo kom Sebastian og við fórum að kveðja Unu og Gunnar (aftur) á flugvöllinum því þau áttu að fara í flug til síns heimabæ. Soldið erfitt að kveðja þau! Svo var ég keyrð til "frænku" minnar, sem býr í risa risa risa stóru húsi í ríka hverfinu í Quito, held ég hafi talið svona 6 stofur. En ég kíkti í tölvunna hjá henni og sofnaði svo í sófanum. Vaknaði svo við óþægilegt augnaráð frá kettinum hennar og fékk að borða hjá henni, og loksins kom hostfjölskyldan mín og sótti mig (Mamman,pabbin og yngsta systirinn sem býr í Quito) Við fórum fljótlega af stað og förinni var heitið í íbúðina hjá systir minni, og mér var sagt að ég yrði þar yfir helgina og myndi svo fara til Guaranda á sunnudegi og leist mér bara ágætlega á það!
Vaknaði morgunin eftir og fór niður og fékk morgunmat. Mamma þú getur verið stolt af því hvað ég borðaði, ommulettu með fullt af grænmeti og drasli! Svo fór ég í moll með systur minni hérna, og keypti mér m.a. buxur og skó fyrir skólann! Svo var bara leti og hádegismatur (Fiskikartöflusúpa,borðaði hana líka mamma) fór svo með host-mömmu minni í klippingu. Svo var bara leti um kvöldið aftur og sofnaði snemma!
Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur (nei ok djók) og við hentum í okkur morgunmat, fyrsti venjulegi maturinn sem ég bragðaði í Ekvador (Samloka með osti og kakó) og svo pakkaði ég og við lögðum af stað til Guaranda í litla bílnum þeirra , ekkert það þæginlegasta en ég meina ég hafði bók og ipod, síðan eru þetta bara rétt rúmir 5 tímar.. En við stoppuðum samt nokkru sinnum,meðal annars í fallegasta krikjugarði sem ég hef séð og fórum á leiðið hjá systir hostpabba míns og allir voru að biðja og svona, skildi ekki orð en þetta var samt sem áður mjög fallegt. Loksins vorum við komin til Guaranda og þá hitti ég Valeriu, hostsystir mína sem ég er búin að spjalla mest við og litla strákinn hennar sem er algjör dúlla! Einnig tóku á móti mér 3 hundar og svo köttur inni og einnig var mér sagt frá 10 hænunum útí garði, sem ég átti eftir að kynnast betur...
Ég er með sér herbergi,sem er alveg ágætt bara og sér klósett sem er mjög fínt. Húsið er frekar stórt og fínt miðað við bæinn, eða skiljiði, myndi kannski ekkert vera talið gott á Íslandi, en hér er það mjög fínt. Ég pakkaði uppúr töskunum, fór og fékk mér að borða og sofnaði svo um 10-11. Skrýtið hvað maður er alllltaf þreyttur hérna, útaf öllu sem maður er að inntaka.
Vaknaði klukkan fimm í morgun þegar hel**** hanin galaði á fullu endalaust, góð byrjun á deginum.. En í dag átti að vera fyrsti skóladagurinn minn en svo sagði hostsystir mín að ég þyrfti ekkert að mæta útaf það væri bara verið að fara tala endalausa spænsku og ég myndi ekkert hafa gaman af því, og ég var eiginlega bara frekar fegin (sérstaklega því þá get ég beðið í 1 dag í viðbót með að klæðast viðbjóðslegasta skólabúning fyrr og síðar). En í staðin fór ég með litla bróðir mínum (strákur hostsystir minnar) á skólasetninguna hans, sem var frekar gaman því þar kynntist ég öðrum skiptinema sem heitir Sara og er frá Finnlandi, og loksins gat ég þá talað við eitthvern! Einnig hitti ég Host fjölskylduna hennar sem er búin að vera mjög dugleg að spjalla við mig á facebook, ég veit ekki alveg afhverju, og mamma hennar var þvílíkt glöð að sjá mig því hún ætlaði að kynna mig fyrir syni sínum sem hún gerði og ég var allan tíman að reyna forðast að vera nálægt honum (sem var mjög erfitt) En þetta var samt ágætt að hitta annað fólk og svona, hitti einnig íslenska stelpu sem er hérna í heimsókn, gott að geta talað við hana líka! (gleymdi samt að setja á mig sólarvörn og mun ekki gera það aftur:S:S) Fór svo í göngutúr með Valgerði, leyfði mér aðeins og smakkaði geggjaðan ís ásamt frönskum, kem spikfeit heim...Svo fórum við á kaffihús með skiptinemunum sem eru hérna í bænum mínum, sem var ágætt, pirrandi að skilja ekki neitt, meðan flestar tala spænsku, en þetta kemur :)
Er núna búin að segja frá því helsta sem ég hef verið að gera! Voða óspennandi enn sem komið er, en svo byrjar skólinn á morgun og svona, vonandi verður allt betra þá :) Fjölskyldan mín er samt mjög góð og vill allt fyrir mig gera, bara erfitt að aðlagast að svona breyttum aðstæðum en bærinn er mjög fátæklegur, þrátt fyrir að það séu margir fallegir staðir á honum. En þetta er svona erfitt fyrst, er að læra tungumálið meira og meira með hverjum deginum sem líður og svona!
En sakna ykkar allra rosalega mikið, og skrýtin tilhugsun að ég muni ekki getað séð ykkur næstu 10 mánuðina:(
En ætla reyna vera jákvæð!
Þangað til næst
Svana
oh my lordí ég er svo abbó út í þinn lífstíl maður! þetta er svo 100% langlang erfiðast fyrstu tvær vikurnar og það þýðir ekkert annað en að þrauka og reyna að njóta! tungumálið kemur svo eins og púsluspil og fyrr en varir verðiru byrjuð að dansa salsa með tosdadas og blóm í hárinu!
ReplyDeleteendalaus ást til þín uppáhald :**
já þetta reddast er það ekki!!
ReplyDeleteást á móti min amor:**