Friday, August 10, 2012

Aðeins 2 vikur í brottför


Ég er að fara út sem skiptinemi til Ecuador eftir tæpar 2 vikur. Sumarið hefur svoleiðis flogið hjá og allt í einu er ég bara aaalveg að fara. Ég veit ekki alveg hvort ég sé meira spennt eða stressuð, en það er frekar skrýtið að hugsa til þess að eftir aðeins 13 daga, þegar allir hérna heima eru að fara byrja í skólanum og svona þá er ég að fara fljúga langt langt í burtu og fara til fjölskyldu sem ég hef aldrei hitt áður í lífinu og fara vera þar í næstum heilt ár. En þetta er mín ákvörðun, og ég ætla reyna mitt besta til þess að þetta verði ógleymanlegt og vonandi, eitt besta ár lífs míns.




En verð að henda inn smá basic staðreyndum um landið. Það er staðsett í Suður-Ameríku með landamæri að Colombiu í norðri en Perú í austri og suðri en í vestri er aðeins Kyrrahafið. Landið er þekkt fyrir það að miðbaugur jarðar liggur þvert í gegnum það, sem er geggjað og einnig fyrir Galápagos eyjarnar sem ég ÆTLA að heimsækja eitthvern daginn. Örugglega einn fallegasti staður sem ég hef séð á myndum.




Ég mun búa í "litlum" bæ sem heitir Guaranda, 250 km frá höfuðborginni. Hann er staðsettur soldið ofarlega í fjöllunum,  Þar búa um 26 þúsund manns og er hann víst mjög vinsæll ferða mannabær. Bærinn virðist vera mjög fallegur og vel skipulagður.

Hann er þekktur fyrir eitt stærsta Carnival í Ecuador, sem er vikulöng hátíð í febrúar. Þarna er víst stundum aðeins vandamál með rafmagn og vatn, en ekkert alvarlegt (vonandi!!). Ég er komin með svona "welcome" fjölskyldu, sem ég mun vera hjá í byrjun, en gæti hugsanlega endað á því að vera þar allan tíman eða kannski bara 1 viku, það er ekkert víst!

 Fjölskyldan er mjög ólík minni, en pabbinn Augusto  er 74 ára, kennari á eftirlaunum, mamman, Lupi er 54 ára og svo býr dóttir þeirra, Valeria 26 ára þar ásamt manni sínum og 6 ára syni.
Ég er aðeins búin að vera í sambandi við þau og lýst mér bara mjög vel á þau og hef einnig heyrt að þetta fólk sé bara rosalega gott og sé heppin að fá að kynnast því. 



Mér finnst  samt erfitt að vita ekki hvað ég mun vera hjá þessari fjölskyldu lengi, farið að langa til þess að fá þetta allt bara alveg á hreint! En ég verð bara að taka öllu sem gefst og gera það besta úr því, þarf maður ekki alltaf að reyna hugsa þannig í svona stöðu!

En komið gott í bili - þangað til næst,
Svana.

http://www.youtube.com/watch?v=P86fPsC_cCQ