En þessar 3 vikur hafa liðið svo hratt, sem er gott og slæmt, ég verð komin heim áður en ég veit af ef tíminn ætlar að halda áfram að líða svona hratt. En er ekki alltaf sagt að tíminn líður hratt þegar gaman er, sem á mjög vel við núna!
Eftir síðasta blogg var hittingur hjá okkur stelpunum í bænum, einu sinni í mánuði hittumst við allar og eitt "land" eldar eitthvað sem er svona týpískur réttur í landinu þeirra. Ítalía endaði og gerði venjulegasta pasta í heimi sem bragðaðist líka ágætlega, ég þarf að elda í desember sem verður eitthvað miðað við matreiðsluhæfileika mína. Annars eru hugmyndir af eitthverjum auðveldum al-íslenskum rétt velkomnar.
Ég sagði líka frá því í síðasta bloggi að Shannon,stelpa frá US, ætti í miklum vandræðum með fjölskylduna sína og svoleiðis, og loksins gerðist eitthvað í þeim málum. Hún ákvað að skipta um fjölskyldu og nýja fjölskyldan hennar er mjög fín. Hún átti heima hjá mér eina viku á milli fjölskyldu-skiptana og það var mjöög gaman. Við elduðum fyrir fjöslkylduna mína (er alltaf að þróa matreiðsluhæfileika mína), bökuðum köku (enn og aftur að þróa matreiðsluhæfileikana mína) og vorum bara bestu dætur í heimi eins og alltaf. Síðustu helgi vorum við líka skildar eftir einar heima yfir helgi, sem sýnir bara hversu mikið traust við höfum unnið, og það var mjög ljúft þótt við frestuðum svoldið að þrífa húsið þangað til á sunnudaginn og það tók sinn tíma. Síðasta helgi fór því bara í rölt um bæinn, borða mikið óhollt og smá halloween-partý um laugardagskvöldið.| Bíða og vona eftir góðri útk |
Ég lenti líka í einu fyndnasta atviki sem hefur komið fyrir mig hérna úti. Við Shannon ákváðum að fara í plokkun og litun sem við höfðum betur getað sleppt. Plokkunnin var ekki plokkun, hún notaði venjulega rakvél og rakaði þangað til ég sat eftir með örþunna línu. En ég gat lítið gert í því, vonaði bara að lituninn myndi heppnast betur. Við sátum prúðar og stilltar í stólunum meðan hún makaði að við héldum brúnum lit á augnbrýrnar okkar, en mér þótti samt frekar skrýtið að efnið var fremur hvítt og leit út eins og hárlitur. En svo var þetta loksins reddý, og ég dó næstum. Haldið ekki að gellan hafi bara aflitað á okkur augnabrýrnar! Eitthvað misskilið okkur og löbbuðum við út með hvítar, aflitaðar augnabrýr sem var það besta sem ég veit. Flýttum okkur nú samt heim og kipptum þessu í lag!
Fór líka í litun á hárinu, sem var nauðsyn. Ætla ekki að fara nánar útí það, nema það að ég mun ekki fara aftur á sama stað.... Kv Barbie.
Annars er þessi vika sem er að líða búin að vera frekar mikið ljúf. Skólavikan var heldur betur skrautleg, á mánudeginum vorum við búnar í skólanum klukkan tíu útaf krakkar þurftu að fara undirbúa tilraunirnar sínar fyrir morgundaginn, því á þriðjudaginn var svo tilraunardagur og eitthver hátíð sem var geggjað, því við skiptinemarnir þurftum ekki að gera neitt nema skoða allt sem krakkarnir höfðu undirbúið og hlusta á t.d. karókí á ensku sem var það fyndnasta sem ég veit. Miðvikudaginn var svo engin skóli því kennararnir höfðu verið svo lengi í skólanum daginn áður að taka til eftir daginn, fimmtudaginn var skóli til 11 og svo foreldrafundir fyrir hina krakkana og föstudaginn var engin skóli því var ákveðin hátíðardagur, dagur hinna dauðu. Svo já, mjög ljúf skólavika, og er því ekki að nenna venjulegri skólaviku núna á mánudaginn kemur.... og já plús það að það er búið að segja við mig að núna þurfi ég sko að fara reyna gera heimavinnuna og læra í skólanum, ég segi bara gangi mér vel og ég mun pottþétt fá 10 í næsta efnafræðiprófi á spænsku, tala nú ekki um eðlisfræði og sögu.
Í síðustu viku fórum við Shannon og Saara með Valeriu systir minni í svona spa-sundlaug. Það var rosa fínt, fórum í nudd í andlitinu, líkamanum og allt fyrir litla 10 dollara, sem myndi kosta á Íslandi svona 100 dollara.
Ekkert smá næs að sitja í heitapottinum,nýbúin í yndislegu nuddi og japplandi á íspinna. Ef eitthver nennir í heimsókn þá skal ég bjóða honum/henni þangað, og borga og allt!! (freistandi ég veit)
Ekkert smá næs að sitja í heitapottinum,nýbúin í yndislegu nuddi og japplandi á íspinna. Ef eitthver nennir í heimsókn þá skal ég bjóða honum/henni þangað, og borga og allt!! (freistandi ég veit)
Á fimmtudaginn var ég samt búin að lofa að vera með í eitthverjum dansi með bekkjafélögum mínum, sem væri nú ekki frásögufærandi nema hvað að mér var ekki sagt að þetta væri 2 tíma session kringum allan bæinn. Allir frá bænum mínum voru búnir að raða sér í kringum göturnar meðan við dönsuðum á fullu við gangnam style lagið. Eitt af því vandræðalegasta sem ég hef gert. En kvöldið endaði þó ennþá betur, þar sem fjölskyldan mín var föst í Quito og ég þurfti að banka uppá hjá vinkonu minni klukkan tíu og spurja hvort ég mætti gista því ég gleymdi lyklinum mínum heima.... Það var samt ekkert mál og var það rosa gaman en þessi dagur var samt heldur betur skrýtinn.
| Frænka ég og systa |
Þessi helgi fór svo í að eyða tíma með fjölskyldunni meira og minna. Borðaði líka naggrís í annað skipti, og ég er ekki að ljúga, þetta er ágætis matur.
Fór svo í afmæli hjá ömmu hennar Shannonar á föstudaginn sem var fínt, því eins og ég sagði fjölskyldan hennar er skemmtileg! Fór svo í gær í kirkjugarð með fjölskyldunni minni og þau sýndu mér staðinn sem þau verða jörðuð, allt tilbúið, frekar spes. Horfði svo á 3 spænskar myndir með systrum mínum og endaði kvöldið á smá dansleik, eins og venjulega á laugardagskvöldum í Guaranda, sem hefur minna að gera en á Akranesi.
Er svo líka komin með nóg af óstundvísi hérna. Það er eitt af því sem ég sakna mest við Ísland, er að þegar fólk segist ætla koma klukkan 3 þá kemur það klukkan 3. (í flestum tilvikum). Hér þýðir 3, 5. Hló svoldið þegar mamma mín hérna var á fullu að undirbúa heimsókn fyrir eina stelpu frá Ameríku sem sagðist koma klukkan átta og mamma mín hérna var svoldið sein og sagði svo, stelpan sem er að koma er á Ameriskumtíma, ekki Ecuadorískum tíma svo hún mun koma á réttum tíma. Allavega gott að þau eru nokkurn veginn meðvituð um þetta vandamál.
![]() |
| kötturinn minn elskar mig |
Annars gengur allt saman vel, búið að vera lítill rigning undafarna daga, mikil sól, mikil gleði sem fylgir því (og mikill ís, önnur saga). Er samt byrjuð að kvíða fyrir jólunum, þótt það séu margir margir dagar í þau, en það verður pottþétt eitt af því erfiðasta. En það koma fleiri jól eftir þessi jól, reyni að hugsa svoleiðis.
Vonandi hafi þið það gott á Íslandi, ég ætla njóta næstu sjö mánuðum og 2 vikum í botn í Ecuador.
Sakna ykkar allra,
Svana
ps ef eitthver vill senda mér bréf eða pakka þá er heimilsfangið mitt:
Familia Camacho Andrade (Svana)
Panamericana norte KM6
Guaranda - Bolivar
Ecuador


