Verð að afska hvað ég hef verið löt að blogga, það er bara svo erfitt að koma sér í það! En hef enga afsökun núna, þar sem ég ligg heima í þunglyndiskasti, sárlasin hlustandi á íslenska jólatónlist og með mestu löngun í lakkrístoppa sem ég veit...
 |
| þessar uppáhalds á afmælisadaginn |
Nei okei ekki alveg svona slæmt, en er semsagt veik, að öllum líkindum með væga matareitrun og er ekki búin að borða neitt síðan í fyrradag (gott fyrir megrunina mína, AFS= another fat student). En veiktist að ég held eftir afmælisdaginn minn 11 des, sem var mjög góður dagur. Mætti í skólann og allir rosa góðir og knúsa mig og segja hamingju með afmælið og svo keypti bekkurinn minn afmælisköku handa mér (sem gerði mig veika en hugurinn gildir) og sungu fyrir mig algjörar dúllur! Og ekki verra að við borðuðum kökuna í 2 földum eðlisfræði tíma! Svo fór ég heim og talaði við fjölskyldu og vini á skype sem gerði daginn enn betri og svo til að toppa daginn, þá var ég læst inní herbergi um sex meðan undirbúðið var "surprice" veisla og allar skiptinemastelpurnar komu syngjandi útúr einu herberginu og fullt af kræsingum og svona, yndislegt kvöld og dagur bara :)
 |
| Með Ólöfunum mínum |
 |
| Túristast í Quito |
Það er samt fullt búið að gerast! Síðstu 3 helgar hef ég verið á ferðalögum, fyrstu 2 í Quito sem var rosalega skemmtilegar ferðir báðar tvær. Fyrri helgina fór ég t.d. og hitti 2 íslenskar stelpur og kvöldið með þeim var fremur ógleymanlegt þökk sé rafmagnslausum lyftum og óþolinmóðum taxa! Fór líka í svona lyftu upp í fjöllin til að skoða Quito, kíkti í moll og svona. Næstu helgi var meira kósý bara, fór með pabba mínum og litla bróðir mínum að skoða fullt af túristabyggingum sem voru rosalega flottar allar og sérstaklega kirkjurnar þótt pabbi minn hérna getur verið soldið öfgafullur og ég er ekki alveg áhugasömust um sögu 3000 ára gamla kirkju, en hann leigði enskan leiðsögumann fyrir mig svo ég gæti fengið að vita allt um þessa kirkju og ég þurfti að láta eins og ég væri bara mest áhugasömust í heimi í rúma 2 klukkutíma um þessa kirkju. En samt sem áður áhugavert.
 |
| Bestu herbergisfélagarnir! |


Síðasta helgi var líka snilld, æltuðum að fara skiptinemastelpurnar á ströndinna, en því miður þá kom jarðskjálfti á þeim stað, grátleg tilviljun, en ákváðum þá í staðinn að fara bara á "mini Amazon" sem er staður sem heitir Puyo og er svona týpískur ferðamannastaður, ekki strönd en rosalega heitt og gerðum fullt af skemmtilegum hlutum og nutum þess að komast úr rigningunni frá Guaranda í það að geta labað um í stuttbuxum, eins og ég var búin að ýminda mér Ekvador! Fórum meðal annars í "Canopy" sem er mesta snilldin, þar sem þú ert hengd á línu á milli fjalla og ýtt þér á milli fjallana! í "lausu lofti". Adrenalínið í botni og fyndnasta sem ég veit þegar það var ekki ýtt vinkonu minni nógu hratt yfir línuna og hún festist í miðjunni, öskrandi "AFHVERJU ÉG" og þurfti þvílíka björgun! Fórum líka í apagarð þar sem ég varð fyrir árás af apa, því ég var með mat í vasanum. Svo borðuðum við góðan mat, slökun og svo auðvitað var kíkt aðeins út um kvöldið, sem var tilbreyting eins og oft áður frá sama staðnum í Guaranda! Geðveik ferð í alla staði bara.
Svo átti litli bróðir minn afmæli, og var svaka veisla fyrir hann, fórum líka um daginn í lautarferð stelpurnar hérna með fullt af góðgæti! Er búin að gera fullt í Nóvember og Desember :)
 |
| Allir að skrópa saman, voða gaman |
Skólinn er líka alltaf jafn mikil skemmtun. Sagði í síðasta bloggi að ég væri búin að fá þær fréttir um að ég þyrfti að fara læra meira í skólanum og haldiði ekki að stelpan hafi slátrað þessu og fengið 2 tíur síðan þá. Skiptir engu máli að það var í ensku og teiknitíma, tía er alltaf tía. Annars er þessi skóli mesta rugl í heimi, um daginn komu strákar aftur með reyksprengju og köstuðu þeim bara inn í tíma eins og ekkert væri, einnig fóru tveir í slag í miðjum tíma, dans"fight" í miðjum tíma svo þegar tveir eru að dansa og ögra hinum, fáránlega fyndið og greyið kennarinn vissi ekkert hvað hún átti að gera þegar allir voru bara að missa sig þarna, krakkarnir í bekknum mínum tóku sig líka til og hópskrópuðu í fyrsta skipti, best í heimi þegar við vorum öll að hlaupa bakvið skólann og skólastjórinn búin að stilla sér upp niðri þar sem hann hélt að við myndum koma niður en hlupum því á annan stað og allir í stress kasti öskrandi að þetta væri í fyrsta skipti sem þau væru að skrópa og eitthvað, allavega fyndin upplifun. Svo daginn eftir ákvað allur árgangurinn að skrópa til að horfa á fótbolta, og við skiptinema stelpurnar í skólanum ætluðum nú auðvitað að nýta okkur þetta tækifæri líka og vorum á leiðinni út þegar það var öskrað "skiptinemastelpur, ef þið farið út núna þá sendi ég ykkur heim til landsins ykkar á morgun!!" Við auðvitað í sjokki og fórum því bara aftur upp í skóla, sátum í sólbaði á eina staðnum í skólanum þar sem næst internet og biðum í 2 tíma þangað til okkur fannst þetta vera komið gott og fórum heim. Gæti skrifað endalaust af sögum um elsku skólann minn hérna, alveg smá tilbreyting frá FVA þótt ég væri ekkert á móti að vera komin í jólafrí núna kveðja stelpan sem fær jólafrí í 2 daga.
 |
| Thanksgiving |
Svo hélt Shannon thanksgiving um daginn, sem var rosaaalega ljúffengt og enn ljúffengara að sleppa skóla til að elda í heilan dag. Þeir sem þekkja mig þekkja líka hæfni mína í eldhúsinu sem varð til þess að ég var meira sett í aðstoðarkokkastarf eins og að skipta um lög í itunes og leggja á borð. En samt gaman og þetta kvöld var yndislegt!
.JPG) |
| Allt á fullu í þessu yndislega sjálfboðastarfi |
 |
| Shannon, Bjarni íslendingur og ég í Salinas! |
Skráðum okkur líka í sjálfboðastarf, sem var ekkert svo góð hugmynd. En enn og aftur fengum við frí í skólanum og fórum í bæ nálægt Guaranda að selja súkkulaði, 2 daga í röð. En þessi bær sem samt rosa fallegur og svona en samt, selja súkkulaði í 20 stiga hita er ekki að gera sig. Ekki var heldur nóg að fara 2x í þennan bæ sömu vikunna, heldur kom í heimsókn strákur frá Íslandi til fjölskyldunnar minnar og ég var sett í það verkefni að fara sýna honum þennan bæ með Shannon, labba uppá fjöllinn og svona gaman. Hittum reyndar mesta dúllumann í heimi frá Hollandi, sem sagði okkur frá því að hann hefði verið rændur í Quito og sýndi okkur stungusár á handleggjunum og svona, var í sjokki! Greyið gamli kallin, var tekið af honum fullt af peningum og myndavél og svona, en samt var hann svo ánægður!
Allavega ætla ég að fara meira varlega héðan í frá!
 |
| El parque |
Á mánudaginn var kveikt á jólaljósunum eins og er alltaf gert á Akratorgi, allir hittast og horft á þegar það er kveikt á jólatréinu, en nei þetta er það fallegasta sem ég hef séð! Aðalstaðurinn hér í Guaranda er alsettur ljósaperum og ljósadýrðin á kvöldin er geðveik!
Um daginn var líka rafmagnslaust í húsinu mínu allan daginn, og var ein heima og var að deyja úr hræðslu, sá ekki neitt og endaði með því að fara sofa klukkan sex. Ótrúlegt hvað ég er samt byrjuð að fara sofa snemma, aðalega vegna þess að það er ekkert að gera hérna á kvöldin og þarf að vakna sex. Reyndar er aðeins búin að vera breyting á þessu núna þar sem ótrúlegt en satt þá nær internetið inní herbergið mitt! Þá er sko gleði, þar sem pabba mínum er illa við að ég sé mikið í tölvunni þá núna get ég bara sagst vera fara sofa! Lítið sem þarf til að gleðja stelpuna í Ekvador!
 |
| Bestar! |
Annars eru bara ellefu dagar í jól og er komin í mesta jólaskap í heimi!! Sérstaklega því jólatréið er löngu komið upp og það er rosalega fallegt, sirka 50 sentimetrar og hvítt á litinn. Nei þetta verða skrýtinn jól og svo frétti ég líka að jólunum hér er fagnað 25.desember um morguninn, til að toppa allt saman. En það koma jól eftir þessi jól og djöfull mun ég njóta íslenskra jóla í botn á næsta ári! Er strax komin með allskonar plön fyrir þau!
Hef ekki tíma til að hugsa svona niðurdrepandi hugsanir,ætla mér að njóta tímans hérna og það eru bara rétt rúmir sex og hálfur mánuðir eftir og fullt af skemmtilegu að gerast strax eftir jól:) Fer á ströndina í janúar með skiptinemakrökkunum í Ekvador, skiptivika í febrúar þar sem við skiptum um bæ í viku til að upplifa meira,CARNAVAL í febrúar líka, frí í skólanum endalausar veislur og skemmtileg heit, á víst að vera ein besta upplifunin fyrir skiptinema í Guaranda og fólk hættir ekki að tala um þetta svo verð að viðurkenna að ég orðin svoldið spennt! Svo Galapagos eyjarnar í apríl og fullt meira! Svo styttist í heimför með hverjum deginum sem líður, trúi varla að það sé bara rúmt hálf ár eftir, þetta er svo sannarlega búið að vera þeir bestu en erfiðustu mánuðir sem ég hef upplifað og búin að kynnast svo mikið af fólki og er viss um að þeir eigi bara eftir að verða betri og betri, sérstaklega þegar spænskan dettur alveg inn, þetta er allt að koma!
En þetta er orðið nógu langt, langaði bara segja gleðileg jól til ykkar allra og sakna ykkar rosalega mikið! Sjáumst eftir
194 daga, þangað til ætla ég að reyna hafa rosalega gaman.
 |
| Sakna hennar svo mikið.... |