Tíminn líður alltof hratt og ég er búin að búa í Ecuador í að verða hálft ár og á bágt með að trúa því. Ég er loksins byrjuð að skilja menninguna hérna betur, loksins búin að ná spænskunni þannig að ég get talað ágætlega villulaust, loksins komin í smá frí frá skólanum og loksins að byrja bloggið sem ég hefði átt að vera löngu búin að gera, en málið er það að ég held að febrúar og janúar hafi aldrei á ævi minni verið jafn uppteknir. En í þetta sinn ekki bara gleðitíðindi heldur einnig hafa erfiðir litið dagsins ljós!
![]() |
| Síðasti dagur Giuliu. |
Við vorum í byrjun skiptinemaársins sjö stelpur. Núna erum við orðnar fimm. Á síðastliðnum mánuði hafa tvær verið sendar heim vegna vandamála sem eiga ekkert heima á internetinu, en heldur ekki nægilegar góðar ástæður fyrir að senda þær heim og þetta hefur tekið virkilega á okkur stelpurnar hérna, og alltaf vantar eitthvað þegar við hittumst núna, en ég mun aldrei gleyma yndislegu Giuliu og Lisu minni sem gerðu þessa fimm mánuði sem þær áttu með okkur að einum bestu fimm mánuðum sem ég hef upplifað, en það er ekkert hægt að gera annað en að halda áfram að hafa gaman án þeirra.
| Síðasti dagur Lísu |
| Hluti af hópnum. |
Síðustu vikuna í janúar voru svo lokapróf í skólanum mínum og ég átti ekki til orð. Í þau fáu próf sem ég mætti, var ein regla í prófinu. Allir svindla og allir fá 10. Svo virðist sem allir kennararnir í skólanum séu annað hvort allir jafn vitlausir eða að öllum sé virkilega slétt sama. Það er gert eitt próf t.d. í ensku, sami kennararinn kennir fimm mismunandi bekkjum, þessir fimm mismunandi bekkir fá allir sama prófið, allir nýkomnir með afrit af prófinu frá hinum bekknum. Og það besta er að þau afrita "afritið" af prófinu hérna í skólanum! Og ef þau hafa ekki verið svona heppin að ná sér í afrit af prófinu, þá er bara rölt til næsta "gáfaða" nemandans í bekknum og staðið fyrir framan hann með símann sinn takandi mynd af svörunum hans og ef kennarinn er eitthvað að skipta sér af því þá ertu bara að sækja þér strokleður eða yddara. Ég átti ekki til orð eins og ég sagði hér fyrir ofan. Elsku bekkjafélagar, gangi ykkur vel í háskóla.
Eftir þessi lokapróf ef svo mætti kalla þau, erum við komin í frí fram í endaðan febrúar. Það er búið að vera frekar næs en þó er ég rétt svo byrjuð að slaka á. Fyrstu helgina í fríinu, ákváðum við stelpurnar að skella okkur á ströndinna, að uppfylla þann langþráða draum sem okkur hefur dreymt um síðan við lentum í Ecuador. Ég get sagt ykkur að þessi strandarferð var draumi líkast, enda hvað getur klikkað í bestu strönd Ecuador þar sem þessar fáar götur sem strandarbærinn hefur er stútfullur af fólki víðsvegar frá heiminum, hótelum, veitingastöðum, diskótekum og mörkuðum. Ströndinn var í max 10 skrefa fjarlægð frá hótelinu okkar og þrátt fyrir mikin sólbruna þá hef ég held ég aldrei skemmt mér jafnvel, gæti alveg vanist því að lifa á ströndinni. Vakna snemma, henda sér á ströndinna, kæla sig svo niður í volgum sjónum og skella sér svo út á lífið um kvöldið. En því miður þurftum við að snúa heim að þrem dögum liðnum, eftir ævintýralega ferð.![]() |
| Elsku Carnaval |
Núna er ég ein heima þar sem fjölskyldan mín fór í sumarhúsið mitt, sem ég hafði engan áhuga á því að fara í fram á laugardag og eru þau því fúl út í mig. Það er erfitt, fjölskyldulífið hérna á ákveðnum tímapunktum þar sem þú getur ekki gert alla ánægða alltaf. Ég er heppin með fjölskyldu eins og ég hef oft áður sagt, en stundum finnuru alveg fyrir því að þú ert bara "skiptinemastelpan" og þú þarft að hafa fyrir því að allir séu ánægðir með þig og fylgir þessu mikið stress. Ég hlakka mikið til að koma heim, geta farið að sofa þegar ég vil, vaknað þegar ég vil og þannig séð gert það sem ég vil en samt alltaf vitað að ég á fjölskyldu sem mun alltaf þykja vænt um þig. Hérna þarf ég svolítið að hafa varan á, ég kem ekki mjög seint heim, ég passa mig á að eyða nógum tíma með fjölskyldu minni og hitt og þetta. En þetta er hluti af reynslunni og síðustu sex mánuðir hafa kennt mér að meta allt svo miklu, miklu betur á Íslandi.
![]() |
| Elsku uppáhalds, föstudagskvöldið á Carnaval. |
Ég er búin að velta því svo mikið fyrir mér hversu skrýtið það verður að koma heim, þá sérstaklega fyrstu dagana og við vorum eimitt að tala um þetta áðan við stelpurnar í bænum mínum. Hérna er allt orðið svo venjulegt og svo margt sem við höfum vanið okkur á að gera án þess að vera varar við það. Eins og þegar ég opna útidyrahurðina, þá þarf ég alltaf að passa mig á því að hundarnir hlaupa ekki inn. Þegar ég fer í sturtu þaf ég að fara út að kveikja á gasinu áður en ég fer í sturtu. Þegar maður fer á klósettið hérna þá hendiru klósettpappírnum í ruslatunnuna ekki í ruslið. Þegar þú kemur í heimsókn til einhvers þá kyssiru alla sem þar eru á kinnina. Ég borða stóran hádegismat og fæ mér svo kaffi og brauð í kvöldmat. Gæti talið svona hluti upp endalaust, það er allt svo öðruvísi hérna. Það mesta sem mér kvíður fyrir heimkomu er það hvað allt er svo dýrt á elsku Íslandi. Þú ferð ekki með minna en 1000 kr. ef þú ætlar að fá þér að borða og svona úti. Hérna í bænum mínum myndi 1000 kr. duga fyrir mat í nokkra daga. Þú getur farið út með 2 dollara og komið saddur heim. Við Shannon bökuðum t.d. köku í dag. Okkur vantaði flórssykur,egg,smjör,kanil og sykur og röltum niður í búð. Þetta allt kostaði rétt rúmar fimmhundruð krónur. Við vorum báðar í hálfgerðu sjokki. Aftur á móti kemur að launin hérna eru ekki há, en samt ég stundum ekki til orð yfir hversu allt er ódýrt. En mun seinna koma með annað blogg um allar breytingarnar sem ég hef lent í hérna, þetta er orðið nógu langt og mun passa mig að láta ekki líða jafn langt á milli næsta bloggs.
![]() |
| Með fjölskyldunni á Carnval. |
Þangað til næst,
Svana ♥





rosa flott blogg svana mín ;)
ReplyDeletetakk eyrún mín ;)
ReplyDeleteLífinu fylgir mismunandi reynsla. Ég veit ekki hvað þú skorar á þig núna en ég fullvissa þig um að Dr White er rétta lausnin, þetta er stuttur vitnisburður minn. Ég er ánægður með að skrifa þetta vegna þess að ég fæ aftur frið í hjónabandi mínu, allt þökk sé frábærum manni að nafni Dr. White, hann hefur öflug töfrahjól sem hjálpa til við að samræma deilur milli mín og eiginmanns míns, maðurinn minn fór að heiman og bjó með öðru kona í 7 mánuði án þess að hugsa um mig og 4 ára dóttur okkar, fjárhagslega hef ég það gott vegna þess að ég er bankastjóri en ég þarf blíða umönnun mann en maðurinn minn er hvergi nærri, ég bið hann að koma nokkrum sinnum heim en hann gerir það ekki ekki gera neitt, ég bað meira að segja eldri bróður sinn um að hjálpa mér. Ég las vitnisburð manns sem lýsti því hvernig Dr. White hjálpaði til við að koma í veg fyrir að kona hans skildi við ástarsöguna, svo ég tók samband hans og útskýrði vandamál mín fyrir honum, hann sagði mér hvað þarf til að elska álög og ég gaf honum fjármálin til að versla í þrjá daga og maðurinn minn kom heim, allt þökk sé þér Dr White. Hafðu samband við hann til að fá hjálp: / WhatsApp: +17168691327: eða Netfang: wightmagicmaster@gmail.com: ef þú ert með tengsl eða lífsvanda hefur hann alls kyns galdra, til að lækna veikindi, skila fyrrverandi, til að sameina hjónaband þitt á ný, til að fá gott starf til að skila aftur týndum peningum þínum og annarri lausn.
ReplyDelete