Monday, January 7, 2013

2013 byrjar vel og á bara eftir að verða betra - og þá sérstaklega í júní!

Ætla byrja þetta æðislega blogg á því að óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, takk fyrir liðnar stundir! Þessi jól og áramót voru heldur í skrýtnari kantinum, eins mikið og ég elska jólin og allt sem fylgir þeim þá eru engin jól án fjölskyldunar og vinana á Íslandi, það er bara svoleiðis! Því er ég frekar fegin að allt þetta sé yfirstaðið og geta byrjað aftur á "venjulegri" rútínu.

Síðasta blogg var heldur dapurt, enda var stelpan veik og ekki með sjálfri sér! Daginn eftir fékk ég pakka frá engli í dulagerfi, henni Valdísi minni sem innihélt allt sem þurfti til að skella í lakkrístoppa og það var gert ásamt oreokökum og Söru stelpu frá Finnlandi, og djöfull brögðuðust þeir vel! Fjölskyldan var ekkert mikið að digga lakkrísinn, en það þýddi bara eitt, meira fyrir mig.

Horft yfir ströndina
Þann 19.desember fór ég með Shannon og fjölskyldu hennar í dagsferð til Guayaquil, sem er sirka 4 tímar í burtu frá Guaranda. Þessi borg er ein sú stærsta í Ekvador og ég elska hana eftir aðeins einn dag, og þá sérstaklega að hitastigið þar er á milli 30 og 40 gráður. Tilgangurinn með þessari ferð var meðal annars að finna kjóla á okkur fyrir skólaballið sem var á laugardeginum eftir. Byrjuðum nú samt auðvitað að túristas smá og skoða, og svo var rölt í fjölda búða og loksins fundu kjólarnir eftir mikla leit. Síðan var komið að því að borða og mér til mikilla gleði var endað á sjávaréttastað og ég sætti mig við það að maula steikta bananaflögur í kvöldmat. En samt góð ferð og mun svo sannarlega fara aftur þangað og vera þá lengur en einn dag.

Yndislegar bekkjasystur
Þann 21.desember fór ég svo með skólanum í smá jólaferð út fyrir bæinn. Krakkarnir í skólanum mínum eru núna komin með eitthvera skrópfíkn og afhverju ekki að vera með í gleðinni?? Við fórum í fyrsta tíman og svo var bara strokið úr skólanum, beint uppí bíl og farið að hafa gaman. Það var rosa gaman að hanga með þeim svona út fyrir skólann, eru allt öðruvísi þar og mikið borðað, hlegið og skemmt sér!

Skvísur á balli
Þann 22.desember var svo svona jóla-prom hjá skólanum þar sem allir eru mjög fínir og sætir. Við skiptinemastelpurnar gerðum okkur til hjá Shannoni og svo um 10 var haldið á ball! Ballið var fínt, en hefði mátt vera betra. Í fyrsta lagi var alltof mikið af fólki og í öðru lagi var selt áfengi þarna og alltof margir ógeðslega fullir og vesen bara. Ekki svona hreint prom eins og ég hélt. En ég skemmti mér samt ágætlega og með stelpunum, gaman að fara svona fínt í kjól og hælum!


Verið að jólast á aðfangadag
Svo rann upp aðfangadagur bjartur og fagur en mér fannst ekkert eins og það væru komin jól. Skrapp með fjölskyldunni minni niður í bæ að kaupa ávexti og grænmeti og lá svo yfir greys anatomy allan daginn þar til um sex þegar allir byrjuðu að gera sig til fyrir kirkju að ég hélt, ég tilbúin 6:15 en allir hinir um átta eins og venjulega og þá var ákvað að sleppa því að fara í kirkju og opna bara pakkana. Ég fékk rosa krúttlegar gjafir frá fjölskyldunni hér og maturinn sem við borðuðum eftir á var líka rosa góður og fór alveg ánægð í rúmið og allt það, en þessi dagur var samt mjög erfiður og saknaði Íslands rosa mikið!
Jóladagur var svo bara venjulegur dagur, gerði ekkert sérstakt og sömuleiðis annan í jólum. Svo átti skólinn að byrja en ég fékk frí fram yfir áramót, smá hvíldarpása sem var vel þegin! Fór með stelpunum í sund og spa og svoleiðis kósý bara.




Flippa með krúttlegu dúkkunum
Verið að brenna greyin, reyndar búið að afklæða þennan
Svo komu áramótin, sem eru eitt það skrýtnasta sem ég hef lent í á ævi minni. Í fyrsta lagi þá kveikja Ekvadorbúar ekki í flugeldum, heldur búa þeir til dúkku úr gömlum fötum og dagblöðum og allskonar drasli! Því stærri því betri. Ef fólk nennir ekki að búa þetta til þá getur það farið út og keypt dúkku til að brenna. Einnig er hefð að karlar sem ekki eru giftir (flest allir unglingar bara) fari út í kvenmannsfötum og með brjóst og læti og dansi á götunum og stoppa bíla til að betla pening. Það tók því um hálftíma að komast niður í bæ með taxa þar sem það var fullt af kynskiptingum útá götu. En bara gaman að þessu. Byrjaði gamlársdag á síðasta útihlaupi ársins og hittumst svo stelpurnar og gerðum nýársheiti og borðuðum fullt af góðum kökum. Fór svo heim að hjálpa til við að búa til dúkkurnar sem við ætluðum svo að kveikja í um kvöldið. Fór svo útí bæ að skoða allar dúkkurnar og kynskiptingana með systir minni, átum franskar í rólegheitunum og um níu leytið snérum við heim og hjálpuðumst að með matinn og svona. Borðuðum svo dýrindis kalkún um 11 og um 12 þá fóru allir út með dúkkurnar og 12 vínber, kveiktu í dúkkunum og borðuðum vínberin. Vínberin 12 eiga að tákna 12 óskir og því þurftum við að óska okkur á sama tíma og við borðuðum þau. Siðan horfðum við á dúkkurnar brenna og kvöddum gamla árið. Frekar skrýtin hefð en samt gaman að upplifa eitthvað svona allt allt öðruvísi. Eftir þetta fór ég svo með systrum mínum niðri bæ að dansa fram á rauða nótt! Áramótin voru skárri en jólin, svo mikið er víst!

Fyrir áramótagaman
En svo byrjaði skólinn 2. janúar og þá var aftur still vekjaraklukkuna 6! Ég verð orðin atvinnumaður í að vakna fyrir allar aldir þegar ég kem heim, þar sem ég fæ aldrei að sofa út hérna í Ekvador þar sem fjölskyldan mín elskar að hafa morgunmat svona um 8:30 um helgar. Annars var skólinn ágætur, bara til 11 útaf allskonar fundum og svona þannig í lifði af!

Siðasta helgi, fyrsta helgin á árinu var samt snilld. Á föstudaginn í skólanum kom skólastjórinn að okkur skiptinemastelpunum og spurði okkur hvort við vildum vera með í skrúðgöngu í öðrum bæ á laugardeginum, því honum vantaði 3 sætar stelpur til að vera fremst að halda á fánanum fyrir skólann. Við vorum fyrst ekkert á því að fara, ákváðum svo að gera þetta fyrir skólann þar sem við erum ekkert alltof virkar í skólanum! Því var mæting í skólann á laugardeginum klukkan sjö! (ALDREI FÆ ÉG AÐ SOFA ÚT). Á föstudaginn hringdi svo mamma mín hér í mig "Svana, komdu heim við erum að fara í sama bæ og þú ert að fara í á morgun, bara ákkurat núna". Ég var ekkert að fýla það, þar sem ég var nýbyrjuð á hlaupinu mínu með Shannon og fékk því leyfi til að vera ein h eima útaf ég er svo góð dóttir, en ákvað frekar að gista hjá Shannon því hún býr nær skólanum. Föstudagskvöldið fór því í það að horfa á fyndnustu myndbönd í heimi, jenna marbles á youtube (hvet alla til að skoða) og borða mangó, en mangóin hérna eru það besta sem ég veit, ekki svona venjuleg mangó eins og eru til á íslandi heldur svona lítil sem þú gerir gat á sýgur bara safan og svona kjarnan, voða ósmekklegt og allt það en fáránlega gott. Og færð 10 svoleiðis þannig þau eru fáránlega ódýr! Og holl þannig allt gott við þau, nema að þau eru bara til í janúar, ó hvað ég mun sakna þeirra.
Best í heimi, maður verður nú samt að þrífa þetta fyrst

En vöknuðum svo ferskar og sætar um sex og gerðum okkur til og haldið var til Echeandia! Komum þangað og gerðum okkur sætar fyrir skrúðgönguna, sem betur fer var skýjað, annars hefði ég líklegast dáið úr hita. Þessi skrúðganga var í tilefni "lýðveldisdags" Echeandia og er siður að allir skólar taki þátt. Þetta var mjög gaman, þótt það hafi verið smá vandræðalegt því stundum löbbuðum við of hratt og ein á undan og svona, en skemmtileg upplifun! Svo fórum við stelpurnar bara á hótelið okkar, því við vorum búin að ákveða að vera yfir nótt og hafa gaman um kvöldið, útaf fullt að gerast útaf þessum degi. Við tók langþráð sturta og svo var bara rölt um bæinn og skoðað og setið í "garðinum" en allir staðir í Ekvador hafa ákveðin miðjupunkt þar sem yfirleitt alltaf er rosa fallegur staður til að setjast og spjalla. Svo var bara haldið aftur heim í sturtu, ekkert grín þessi hiti og svo var bara gaman um kvöldið, sem endaði samt ekkert sérstaklega vel þar sem núna er tími ógeðslegu pöddunar í Ekvador sem ég man ekki hvað heitir en svona kakkalakkar með vængi, og var því byrjað á því að drepa nokkur stykki fyrir svefn! Eftir svona helgar sé ég samt mest, afhverju ég gerðist skiptinemi, að fá að ferðast með yndislegum stelpum og hafa gaman í stuttbuxum og hlýrabol í janúar, er eitthvað sem ég er alveg að njóta í botn.
Bestar! 




Í dag var svo bara venjulegur mánudagur og ný vika hafin og hver veit hvað gerist í þessari viku. Shannon fékk samt hræðilegar fréttir í skólanum í dag, pabbi hennar hringdi og sagði henni að góð vinkona hennar hefði látist í morgun í bílsslysi og var þetta því frekar sorglegur dagur og útaf þessu er ég eiginlega bara í sjokki og samhryggist henni innilega og það er örugglega fáránlega erfitt að vera hérna úti þegar eitthvað svona skelfilegt gerist, og þetta er minn versti ótti. Svo endilega farið varlega allir og njótið lífsins, lífið er svo stutt og engin veit hvað getur gerst á morgun.

Læt þetta duga í bili,
Sjáumst eftir fimm og hálfan mánuð, styttist með hverjum deginum!
Svana.






2 comments:

  1. skil ekki afhverju enginn notar commentakerfið hérna?!?! frábært blogg engu að síður og ég hefði án efa rakað af mér hárið fyrir að upplifa áramótin þín með þér:P
    knús í boxi

    ReplyDelete
  2. Lífinu fylgir mismunandi reynsla. Ég veit ekki hvað þú skorar á þig núna en ég fullvissa þig um að Dr White er rétta lausnin, þetta er stuttur vitnisburður minn. Ég er ánægður með að skrifa þetta vegna þess að ég fæ aftur frið í hjónabandi mínu, allt þökk sé frábærum manni að nafni Dr. White, hann hefur öflug töfrahjól sem hjálpa til við að samræma deilur milli mín og eiginmanns míns, maðurinn minn fór að heiman og bjó með öðru kona í 7 mánuði án þess að hugsa um mig og 4 ára dóttur okkar, fjárhagslega hef ég það gott vegna þess að ég er bankastjóri en ég þarf blíða umönnun mann en maðurinn minn er hvergi nærri, ég bið hann að koma nokkrum sinnum heim en hann gerir það ekki ekki gera neitt, ég bað meira að segja eldri bróður sinn um að hjálpa mér. Ég las vitnisburð manns sem lýsti því hvernig Dr. White hjálpaði til við að koma í veg fyrir að kona hans skildi við ástarsöguna, svo ég tók samband hans og útskýrði vandamál mín fyrir honum, hann sagði mér hvað þarf til að elska álög og ég gaf honum fjármálin til að versla í þrjá daga og maðurinn minn kom heim, allt þökk sé þér Dr White. Hafðu samband við hann til að fá hjálp: / WhatsApp: +17168691327: eða Netfang: wightmagicmaster@gmail.com: ef þú ert með tengsl eða lífsvanda hefur hann alls kyns galdra, til að lækna veikindi, skila fyrrverandi, til að sameina hjónaband þitt á ný, til að fá gott starf til að skila aftur týndum peningum þínum og annarri lausn.

    ReplyDelete